by Herdís Þorgeirsdóttir | 6.07.2009 | ALMANAK
Icelandic lawyer Dr. Herdís Thorgeirsdóttir was elected president of the European Women Lawyer’s Association (EWLA) during the association’s 9th congress in Reykjavík last weekend.
Dr. Thorgeirsdóttir is the association’s third president. Approximately 150 people attended the congress, which was addressed by 35 speakers, Fréttabladid reports.
EWLA was founded in 2000 as a platform for women lawyers in Europe, intended to influence legislation and politics in EU and EEA member states on the basis of gender equality.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 5.07.2009 | ALMANAK
Í Skálholti ásamt fráfarandi forseta Evrópusamtaka kvenlögfræðinga, Leenu Linnainmaa frá Finnlandi (t.v) og öðrum fyrrverandi forseta, Elisabetu Muller frá Þýskalandi (t.h.). Konan með rauða sjalið er Lenia Samuel, yfirmaður á vinnuréttarsviði framkvæmdarstjóra Evrópusambandsins.

by Herdís Þorgeirsdóttir | 4.07.2009 | ALMANAK
Herdís Þorgeirsdóttir var kjörin forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga. Sjá hér.
Myndin er tekin við Reykjavíkurtjörn – með Beatrice Castellane, fyrrum forseta frönsku kvenlögmannasamtakanna.
Neðri myndin er tekin í kvöldverði í Iðnó. Fyrir miðri mynd er veislustjórinn, Þórunn Hafstein.

by Herdís Þorgeirsdóttir | 4.07.2009 | ALMANAK

Eva Joly var einn aðalfyrirlesara. Dagskrá ráðstefnunnar er hér.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 20.06.2009 | ALMANAK
Svo virðist sem margir lögfræðingar séu komnir á þá skoðun að Alþingi megi alls ekki samþykkja svokallaðan Icesave samning. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor, segir að engin þjóð beygi sig undir lög sem ógna öryggi hennar.
Sjá umfjöllun hér og hér.
Grein eftir Herdísi Þorgeirsdóttur í Fréttablaðinu.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 8.06.2009 | ALMANAK
Árleg ráðstefna evrópskra kvenlögfræðinga (EWLA) verður haldin í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík 3. og 4. júlí næstkomandi. Ráðstefnan er ekki einskorðuð við lögfræðinga. Hún er öllum opin sem láta sig samfélagsleg mál varða. Ódýrara gjald fyrir þá sem skrá sig fyrir 8. júní á
http://www.bifrost.is/pages/radstefnur/ewla-umsokn-islenska-/
Þema ráðstefnunnar er Mannréttindi og Fjármálamarkaðir. Aðalfyrirlesari er norsk/franski dómarinn EVA JOLY, sem íslensk stjórnvöld hafa fengið sem ráðgjafa. Hún hefur einnig verið ráðgjafi norskra stjórnvalda en vakti athygli um alla Evrópu þegar hún var fengin af frönskum yfirvöldum til að rannsaka milljarða evru hneykslið sem franska ríkisrekna olíufyrirtækið Elf var flækt í. Eva Joly sætti hótunum á meðan rannsókninni stóð; henni var hótað lífláti, sími hennar var hleraður og brotist var inn á heimili hennar og skrifstofur. Í kjölfar rannsóknarinnar sem Eva Joly stýrði voru 30 manns sakfelldir en í málið flæktust aðilar úr ríkisstjórn Frakklands.
Einnig talar EINAR MÁR GUÐMUNDSSON rithöfundur um fjármálahrunið íslenska og veruleikann að baki því. Meðfylgjandi er dagskrá ráðstefnunnar en þar fjalla lögfræðingar, rithöfundar og fleiri um mannréttindi og fjármál, fjölskyldur í kreppu, kynjajafnrétti á tímum óvissu, nýja löggjöf og siðferði í viðskiptalífi. Ráðstefnan fer fram á ensku en ég minni á að meirihluti þátttakenda eru íslenskir – og ítreka að ráðstefnan er ÖLLUM OPIN svo lengi sem húsrúm leyfir.
Þeir sem skrá sig fyrir 8. júní nk. fá ódýrara gjald. Unnt er að skrá sig til þátttöku og sleppa kvöldverði og dagskrá eftir ráðstefnu á laugardegi. Laganemar og aðrir nemar greiða lægra ráðstefnugjald.
Hvet ykkur til að skrá ykkur sem fyrst.