by Herdís Þorgeirsdóttir | 19.06.2006 | ALMANAK
Á kvennafrídaginn kom 2. tölublað tímaritsins Húsfreyjunnar 2006 í verslanir. Blaðið er málgagn Kvenfélagasambands Íslands (stofn. 1930) út en það hóf göngu sína árið 1949 og er því í hópi lífseigustu tímarita landsins. Ritstjóri þess Kristín Linda Jónsdóttirer jafnframt kúabóndi í Miðhvammi í Þingeyjarsýslu og nýkjörin fulltrúi í sveitarstjórn í Aðaldælahreppi (L-listinn). Hún hafði samband vegna Tengslanetsins og fékk Herdísi Þorgeirsdóttur í forsíðuviðtal. Útlit forsíðunnar hefur verið uppfært en myndina að þessu sinni tók Kristinn Ingvarsson ljósmyndari á Morgunblaðinu.
by Herdís Þorgeirsdóttir | 14.06.2006 | ALMANAK
Bók Herdísar Þorgeirsdóttur, “Journalism Worthty of the Name” er á lista Oxford University Press yfir helstu bækur á sviði tjáningarfrelsis.
Gagnrýnir bloggarar á sviði tónlistar, bókmennta, kvikmynda, menningar, tækni og stjórnmála fjalla m.a. um nýútkomna bók um frelsi fjölmiðla 2005 (Freedom of the Press 2005: A global survey of media independence) og mæla á síðunni sérstaklega með nokkrum nýútkomnum bókum, þ.á.m. “Journalism Worthy of the Name” eftir Herdísi Þorgeirsdóttur (útg. Brill/ Martinus Nijhoff. 2005). Nýlega vísaði prófessor Jan Rosen við lagadeildina í Stokkhólmsháskóla í niðurstöður Herdísar Þorgeirsdóttur á ráðstefnu Evrópskra sjónvarpstöðva EBU um höfundarrétt í Barcelona (Quo vadis copyright?). Þess má jafnframt geta að bókin er að verða uppseld hjá forlaginu og ný prentun á leiðinni, sem þykir ágætt þegar fræðibækur eiga í hlut. Bækur útgefnar hjá alþjóðlegu forlagi eins og Brill fara á söfn víða um heim og upplagið er oft miðað við að duga í slíka dreifingu en samkvæmt þessum fréttum er almenn eftirspurn eftir bókinni erlendis.
Að lokum má geta þess að væntanlegt er í útgáfu nú í október rit Herdísar Þorgerisdóttur á sviði barnaréttar (Commentary on the United Nations Convention on the Rights of the Child , Volume 13 Article 13: The Right to Freedom of Expression ).
by Herdís Þorgeirsdóttir | 13.06.2006 | ALMANAK

Morgunblaðið greinir frá því í dag að á síðasta degi sumarþings hafi verið samþykkt tillaga Jónínu Bjartmarz um breytingu og viðbót við hlutafélagalög: “Við kjör í stjórn opinbers hlutafélags skal tryggt að í stjórninni sitji sem næst jafnmargar konur og karlar.” Jónína segist fallast á þau rök í bili hvað varðar einkageirann að þar hljóti augu manna að opnast fyrr eða síðar gagnvart þeim tækifærum sem þátttaka kvenna skapar og að hún verði sjálfsögð. “En mér finnst lagasetning sjálfgefin gagnvart opinberum hlutafélögum,” segir hún í viðtali við Önnu Pálu Sverrisdóttur blm. Mbl. sem sat ráðstefnu Tengslanets III. Áhrifa ráðstefnunnar gætir þegar og alveg óhætt að fullyrða að sú ályktun sem þar var samþykkt um lagasetningu á jöfnun kynja í hlutafélögum skráðum í Kauphöll Íslands verður áfram í umræðunni (sbr. viðtöl við nýráða kvenstjórnendur hjá Sjóvá í viðskiptablaði Mbl. 15. júní: “Lög um kynjahlutföll engin lausn” og viðtal við Valgerði Sverrisdóttur ráðherra í hádegisfréttum RÚV 14. júní um lagasetningu til að jafna kynjahlutföll sbr. ályktun Tengslanets III, sem er lesin í upphafi fréttar.)
by Herdís Þorgeirsdóttir | 2.06.2006 | ALMANAK
Frá móttöku þáv. utanríkisráðherra Geirs H. Haarde til heiðurs Germaine Greer við lok Tengslanets-III föstudaginn 2. júní (ljósm. Mbl. Kristinn Ingvarsson). Sjá umfjöllun Morgunblaðs um ályktun Tengslanets III